Nei góðan daginn...Long time no
see, þetta gengur ekki svona lengur!
Ýmislegt búið að gerast síðan síðast,
skólinn er byrjaður og er hann alveg helvíti fínn, búið er að busa
okkur og svo erum við einnig búin að fara í heljarinnar tveggja
daga göngu sem var alveg þrælmögnuð allavega svona eftir á að
hyggja.
Maður er auðvitað búinn að fá
“roomie” og hann er alveg helvíti fínn, maðurinn er reyndar
hættulega líkur Steve The Pirate en það er bara ekkert annað en
gott.
Busunin var helvíti góð, allir
helvíti góðir á því og vel í því. Það byrjaði nú þannig að ég,
Árni(Steve The Pirate) og Höddi a.k.a. Hudson Bay fórum á Selfoss
og keyptum okkur allir kassa af beer og svo hófst bara skemmtunin
við vorum öll sett í eitthvað lítið herbergi þar sem við fórum í
nafnaleiki ekki í fyrsta skipti hehe og svo vorum við öll teimd út
eftir góða stund en með bundið fyrir augun þar sem við vorum látin
skríða á hnjánum upp í matsal(fór ekki vel í hnén) og þar vorum við
öll sett í hring og fengum staup af eplasnafs og svo var ein
dýrategund hvísluð í eyrað á öllum og það vorum nokkrir sama dýrið
og við auðvitað með bundið fyrir augun og máttum bara gefa hljóð
okkar dýrs frá okkur og áttum að finna okkar hóp.
Þegar að það var komið þá hófst
kapphlaup ásamt hlaupum og mikilli bjórdrykkju sem fór misvel í
fólk. Það er skemmst frá því að segja að strákarnir áttu að fara úr
nærbuxunum og stelpurnar úr brjóstarhöldurunum á leiðinni og einn
strákur og ein stelpa úr hverjum hópi áttu að skipta um
föt.
Svo þegar að komið var á endastöð þá
var maður látinn krjúpa á hné og drekka eitt glas af vatni úr
Laugarvatni og þar með vígður inn í skólann.
Þegar að inn var komið fengum við nú
nærbuxurnar en þá var þetta ekki búið því við vorum hvert eitt og
einasta látin fara upp á svið fyrir framan alla eldri bekkinga
skólans og hvort annað bara á nærunum og vorum láta kynna okkur:
nafn, hvaðan maður kemur, hvað maður er gamall, íþrótt og svo
hjúskaparstaða.
Þetta var bara gaman og verður í
minnum haft væntanlega eitthvað áfram.
Lagt var af stað í gönguferð 4 Sept
Mánudag að morgni og komið heim 5 Sept Þriðjudegi um þrjú leytið.
Ég verð að segja að þetta var miklu erfiðara og lengra en ég bjóst
við en ég held að þetta hafi skotið flestum skelk í bringu en við
gengum með áttavitana okkar og 70 lítra bakapokana í tæpa 6 og
hálfa klukkustund inn eftir en þegar að þar var komið þá þurfti
auðvitað að vaða yfir ána sem að var á milli okkar og
tjaldsvæðisins, áin var ÍSKÖLD og það var ógeðsleg rigning alla
leiðina inn eftir. Maður var mjög feginn þegar að við vorum komin
og hvað þá yfir ána.
Það var svo blautt og rigningin
ætlaði ekki að stoppa og maður var nú ekki með mikið af aukafötum
en gat þó bjargað sér og blautir skór og maður þurfti að sofa í
blautu tjaldi í hálf blautum svefnpoka þannig að maður var feginn
að fá að leggja af stað heim morguninn eftir.
Það voru fjórir saman í hverjum hópi
og átti hver hópur að rata heim saman, fengum bara að hafa
áttavitann í miðjum óbyggðum (það var semsagt kennari með okkur í
för á leiðinni inn eftir en hann hjálpaði okkur þó ekki). Það
hafðist þó á tæpum 3 klukkutímum sem er bara mjög gott, fundum
göngubrúnna yfir ána og það var mikill léttir get ég sagt ykkur.
Maður var pirraður á köflum en þó var þetta frábær skemmtun eftir á
að hyggja hehe. Fyrst og fremst reynsla í bankann og góð útivera í
skemmtilegum hópi.
Þetta er ágætt í bili held ég og ég
kem bara með meira fljótlega en kveð þó í beleee...
Sææælar!